Allhvöss austanátt með slydduéljum verður við suður- og suðausturströndina í dag. Búast má við allt að 18 metrum á sekúndu.Annars staðar verður öllu hægari vindur. Áfram verður kalt í innsveitum norðaustanlands, allt að 13 stig, en hlýjast verður við suðurströndina. Þar verður hiti í kringum frostmark.Veðurspáin er svohljóðandi:Austan 10-18 m/s sunnan- og suðaustantil og dálítil slydduél. Annars mun hægari austlæg eða breytileg átt og yfirleitt þurrt. Frost 1 til 13 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands, en hiti kringum frostmark við suðurströndina.Suðlæg eða breytileg átt 5-10 á morgun og víða bjart, en skúrir eða slydduél við suðaustur- og austurströndina. Slydduél eða él norðantil annað kvöld. Hiti breytist lítið.