Rob Bonta ríkissaksóknari Kaliforníu tilkynnti í gær um málsókn ríkisins á hendur gervigreindarfyrirtækinu OpenAI. Málsóknin er byggð á þeim grundvelli að fyrirtækið hafi blekkt almenning og stofnað honum í hættu með því að þróa gervigreindarlíkön án þess að gera viðeigandi öryggisráðstafanir.Sérstaklega er vísað í árás gervigreindar OpenAI á sprotafyrirtækið Hugging Face, sem starfar líka á sviði gervigreindar. Í árásinni slapp gervigreindarlíkan sem OpenAI var að gera tilraunir með út úr lokuðu prófunarkerfi upp á eigin rammleik og hakkaði sig inn í kerfi Hugging Face. Þá reyndu erindrekar líkansins jafnvel að fela slóð sína. FYRSTA MÁLSÓKNIN AF ÞESSU TAGI Talsmaður OpenAI, Drew Pusateri, segir í samtali við breska ríkisútvarpið að málsóknin virðist einblína á OpenAI þrátt fyrir að ön