Sextug kona skotin í höfuðið af landtökumönnum

Ísraelskir landtökumenn skutu 60 ára gamla palestínska konu í höfuðið í gær. Hún lést skömmu síðar af sárum sínum. Ísraelsher greinir frá því að palestínskir árásarmenn frá þorpi á Vesturbakkanum hafi setið fyrir ísraelsku landtökumönnunum.Þeir hafi vísvitandi ekið á miklum hraða á bíl þeirra og fylgt ákeyrslunni eftir með grjótkasti. Ísraelsmennirnir beittu þá skotvopnum gegn Palestínumönnunum. Auk konunnar voru fjórir aðrir þorpsbúar færðir á sjúkrahús með skotsár.Fyrr í gær ók ísraelskur landtökumaður á fimm Palestínumenn á Vesturbakkanum. Ísraelski herinn sagði við AFP-fréttaveituna að atvikið hefði verið umferðarslys. STIGMÖGNUN OFBELDIS Ofbeldi á milli landtökumanna á Vesturbakkanum og Palestínumanna hefur færst í aukana undanfarnar vikur, sérstaklega í aðdraganda kosninganna í Ís
Sextug kona skotin í höfuðið af landtökumönnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar