Kostaríski blaðamaðurinn Camilo Rodriguez var skotinn til bana rétt fyrir utan höfuðborgina San José í dag. Rodriguez var á ferð í bíl sínum þegar tveir menn á mótorhjóli óku upp að honum og hófu skothríð. Hann hafði áður greint frá því að honum hefðu borist morðhótanir frá glæpahópum.Rodriguez var fimmtugur að aldri. Hann var sjálfstæður blaðamaður og hafði meðal annars skrifað um tengsl fíkniefnasala við stjórnmálamenn í landinu. Í fyrra höfðaði forseti landsins, Laura Fernandez, meiðyrðamál gegn Rodriguez fyrir að halda því fram að heimili hennar hafi verið byggt fyrir illa fengið fé úr fíkniefnasölu.Fernandez byggði kosningabaráttu sína að miklu leyti á loforðum um að ná stjórn á glæpaöldunni í landinu. Hún segist sækja innblástur sinn til Nayib Bukele, forseta El Salvador, en hann hef