Brýr skotmark bæði Rússa og Úkraínumanna

Úkraínumenn gerðu árás á Krímbrúna annan daginn í röð. Krímbrúin tengir Rússland og Krímskaga saman. Ríkisstjóri Krímskaga greindi frá árásinni á Telegram. Umferð um brúna var stöðvuð í kjölfar árásarinnar. Brúin er mikilvæg samgönguæð fyrir Rússa en ekki liggur fyrir hve miklar skemmdir urðu á brúnni. EPA / StringerRússar gerðu jafnframt árásir á tvær stórar brýr í Kænugarði í Úkraínu. Borgarstjóri Kænugarðs greindi frá árásunum á Telegram rétt fyrir miðnætti á staðartíma. Þá hafi verið gerðar árásir á bæði norður- og suðurbrúna í höfuðborginni. Skömmu fyrir árásirnar hafði úkraínski herinn varað við flugskeytum sem stefndu að borginni.
Brýr skotmark bæði Rússa og Úkraínumanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar