Margt bendi til þess að Epstein hafi verið myrtur í fangaklefanum

Bandaríski réttarlæknirinn Michael Freeman telur að bandaríski kynferðisbrotamaðurinn Jeffrey Epstein hafi ekki svipt sig lífi heldur hafi hann verið myrtur í fangaklefa sínum. Epstein lést þann 10. ágúst árið 2019. Þá beið hann réttarhalda en hann var ákærður fyrir að hafa staðið að mansali á ólögráða stúlkum í kynferðislegum tilgangi. Freeman segir krufningarskýrslu Epsteins varpa ljósi á þau átök sem áttu sér stað í fangaklefanum. Þá bendi allt til þess að Epstein hafi orðið fyrir árás áður en hann lést. Freeman greinir frá þessum niðurstöðum sínum í þættinum Newsnight á BBC. Á meðal þeirra áverka sem greint er frá í krufningarskýrslu Epsteins er djúp blæðing í vinstri öxl, mögulegir höggáverkar í andliti og för á hálsi hans sem telja má að séu eftir neglur. Freeman telur að förin bendi
Margt bendi til þess að Epstein hafi verið myrtur í fangaklefanum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar