Danmörk og fjögur önnur Evrópuríki ætla að senda fólk sem hefur fengið synjun um alþjóðlega vernd til Rúanda í Afríku strax á næsta ári. Þetta var tilkynnt eftir fundarhöld í Austurríki í dag.Spurst hafði út að tíðinda væri að vænta í heimsókn Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, til Austurríkis. Það fékkst staðfest á fundi með fréttamönnum síðdegis.„Austurríki, Danmörk, Holland, Þýskaland og Grikkland ætla í sameiningu að opna fyrstu brottvísunarstöðina í Rúanda árið 2027,“ tilkynnti Christian Stocke, kanslari Austurríkis.Þetta hafði legið í loftinu síðan í sumar þegar Evrópuþingið samþykkti ný lög sem heimila aðildarríkjum að reisa brottvísunarstöðvar utan ESB.„Við þurfum að endurheimta stjórn á landamærunum okkar og í dag, eins og allir vita, þéna glæpasamtök milljarða evra á