Eftir að Ingvar Þóroddsson þingmaður hefur sagt sig úr Viðreisn og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn á Viðreisn engan fulltrúa í Norðausturkjördæmi. Formaður norðausturráðs Viðreisnar segir ljóst að ríkisstjórnin hafi tekið ákvarðanir án „landsbyggðargleraugna“ og vonar að tíðindin marki ákveðna stefnubreytingu hjá flokknum.