Skibidí Ohio er bara eitthvað sem við segjum

Dagur íslenskrar tungu er í dag, verðlaun voru veitt og eldri kynslóðir kenndu þeim yngri íslensku.Í hverri viku hittast börn úr Fossvogi sem eru með íslensku sem annað tungumál og eldri borgarar í félaginu Sléttuúlfunum á Hrafnistu á Sléttuvegi, tala saman á íslensku, lesa, leika sér og spila.Tilgangurinn er fyrst og fremst að efla íslenskukunnáttu barnanna - en líka að hafa gaman.„Ég er að læra íslensku með bestu ömmu minni og ég er að lesa íslenska bók,“ segir Karolina Kaspar sem var mætt til að lesa með Guðrúnu Kristínu Jónsdóttur. FULLT AF ÖFUM OG ÖMMUM „Ég ku vera það, besta amman,“ segir Guðrún og hlær. „Við erum að æfa okkur í að lesa og síðan, þegar við erum búnar að því þá förum við og leikum okkur. Spilum.“„Hér er fullt af öfum og ömmum. Hámenntaðir háskólakennarar, leikskóla
Skibidí Ohio er bara eitthvað sem við segjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar