Áætlaður rekstrarhalli heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni er 5-15 prósent. Forstjórar sex heilbrigðisstofnana, allra nema höfuðborgarsvæðisins, hafa undirritað minnisblað sem liggur fyrir fjárlaganefnd Alþingis um að ef ekki fáist viðbótarfé verði hallinn um fimm milljarðar á árinu og bætist við uppsafnaðan halla fyrri ára.Hvað veldur þessum halla?„Þetta er í rauninni þróun sem hefur verið í gangi síðustu 4-5 árin og snýst að meginhluta um að kauphækkanir eða launahækkanir bæði stofnana og í kjarasamningum hafa verið talsvert meiri en nemur þeim hækkunum sem stofnanir hafa fengið í fjárframlög,“ segir Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands. RÍFLEGA NÍU MILLJARÐA REKSTRARHALLI Á STOFNUNUM HEILBRIGÐISKERFISINS Nýverið var sagt frá rúmlega tveggja milljarða rekst