Ný réttarhöld í máli Lindsay Clancy verða haldin í Massachusetts í Bandaríkjunum í mars á næsta ári. Í september ógilti dómari réttarhöld í máli Clancy, sem er ákærð fyrir að hafa myrt börnin sín þrjú.Í fyrri réttarhöldum komst kviðdómur ekki að niðurstöðu um sakhæfi Clancy. Nokkrir kviðdómendur hafa sagt í sjónvarpsviðtölum að þeir hafi ætlað að sýkna hana vegna geðveiki. Einn kviðdómari af tólf hafi aftur á móti ekki verið tilbúinn til að gera það.Enginn véfengdi að Clancy hefði kyrkt börn sín þrjú með mótstöðuteygjum sem notaðar eru til líkamsræktar. Hún veitti sér svo stunguáverka og reyndi að fremja sjálfsvíg með því að stökkva út um glugga.Hefði kviðdómur komist að einróma niðurstöðu um að hún skyldi sýknuð á grunni geðveiki hefði hún verið dæmd til vistar á geðsjúkrahúsi.Verjendur C