Enginn fundur boðaður í deilu Icelandair og flugmanna

Fundur hefur ekki verið boðaður í kjaradeilu Icelandair og flugmanna, segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari.Flugmenn Icelandair í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna hafa samþykkt ótímabundnar verkfallsaðgerðir í leiguflugi félagsins. Þær eiga að hefjast á miðnætti 20. nóvember. Ástráður segir að embættinu hafi borist verkfallsboðun flugmanna á föstudaginn. Næsta skref sé að boða deilendur á fund. Hann gaf ekki upp hvenær megi búast við fundi. Enginn formlegur fundur hefur verið haldinn í yfir tvær vikur.Þá hefur ekki verið boðað til fundar í deildu Icelandair og flugvirkja. Ekki hefur verið fundað síðan á mánudaginn í síðustu viku.RÚV / Kristófer Óli Birkisson
Enginn fundur boðaður í deilu Icelandair og flugmanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar