Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir að hafa að kvöldi mánudagsins 13. júlí 2026 veist með vasahnífi að leigubílstjóra í Reykjavík. Í ákærunni er hann sagður hafa borið hnífinn að hálsi brotaþola sem hafi náð að bera fyrir sig hendur. Hann hafi þó hlotið opin sár á öxl og baugfingri auk sárs á þumalfingri og skrámur á hálsi.Með háttseminni hafi ákærði reynt að svipta brotaþola lífi, segir í ákærunni.Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar og málskostnaðar brotaþola. Þá er þess krafist að ákærða verði gert að greiða brotaþola tæpar 7,8 milljónir króna í skaða- og miskabætur.Málið verður tekið fyrir á morgun.