Harðar orðahnippingar urðu milli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, og Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Sigmundur gagnrýndi efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar harðlega og sakaði hana um að hafa aukið efnahagsvandann með skatta- og gjaldahækkunum. Kristrún hafnaði gagnrýninni og sagði ríkisstjórnina staðráðna í að koma ríkisfjármálunum í jafnvægi. Sigmundur Davíð sagði efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar hafa valdið miklum vonbrigðum. Atvinnuleysi...