Stuðningsmenn Jensens Huangs hafa stofnað til undirskriftarsöfnunar þar sem stjórn Nvidia er hvött til að setja Huang aftur í starf forstjóra fyrirtækisins. 175 þúsund manns hafa skrifað undir áskorunina og þar á meðal eru Elon Musk, stofnandi SpaceX sem jafnframt er ríkasti maður heims, og Tim Sweeny, framkvæmdastjóri Epic Games sem framleiðir Fortnite.Í tísti á samfélagsmiðlinum X segir Musk að Huang hafi stýrt Nvidia með myndarskap. Hann segir Huang hafa handsalað marga samninga án þess að þeir væru skriflegir. „Án Jensens eiga sumir af þessum mikilvægu samningum eftir að glatast,“ skrifaði Musk.Hlutabréfaverð Nvidia tók mikla dýfu þegar upp komst um framhjáhald Huangs með konu sem er sögð vera kínverskur njósnari. Hann er einnig sagður hafa haldið við samstarfskonu sína hjá Nvidia en þ