Orðrómur um yfirvofandi stafrænan heimsendi hefur farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla og samskiptaforrit víða um heim. Samkvæmt vinsælum færslum eiga tölvuþrjótar að ráðast á helstu banka heims á morgun, þann 17. nóvember, eyða bankareikningum fólks og lama internetið í þrjá mánuði. Í sumum útgáfum sögunnar er jafnframt talað um nýjan heimsfaraldur, svokallað „COVID 2.0“, og ofuröfluga gervigreind...