Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir ekki næg gögn liggja fyrir til að sjá hvert útbreiðsla Covid-19 stefnir. Greiningum fjölgaði mikið í fyrstu viku nóvember og hafa ekki verið fleiri síðan í ágúst 2024.Í fyrstu viku mánaðar greindust 32 með kórónuveiruna og hafa ekki fleiri greinst síðan í ágúst 2024. Þrátt fyrir að smitum hafi fjölgað segir sóttvarnalæknir að greiningar séu ekki margar.„Þetta er bara ein vika svo við þurfum að sjá fleiri gögn til að vita hvert stefnir og við höfum heldur ekki góðar upplýsingar endilega um veikindin hjá fólkinu.“Í tilviki eldra fólks er gert ráð fyrir að smitin hafi áhrif og geti leitt til alvarlegra veikinda.Fólk greinist einkum á spítölum eða bráðamóttöku og smitin tengjast sum hver hópsýkingu á Landspítalanum. Guðrún segist ekki hafa upplýsingar um h