Vegurinn um Öxi var merktur ófær alla helgina en íbúar á Djúpavogi fullyrða að lítið hefði þurft til að opna hann. Þeir vilja að vegurinn sé opnaður um leið og óveðri slotar og segja að það kosti oft lítið.„Þær upplýsingar sem við fengum um helgina voru að það væri ein brekka með smá snjó í sem væri jeppafær en að öðru leyti væri Öxi auð. Þannig að þetta hljómar eins og lítil fyrirstaða,“ segir Kristján Ingimarsson, íbúi á Djúpavogi.Vegurinn um Öxi styttir hringveginn og leiðina á milli Djúpavogs og Egilsstaða um tæpa 70 kílómetra. Eftir 1. nóvember er vegurinn þó aðeins opnaður einn dag í viku. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni var veður vont á Öxi fram eftir laugardegi. Á sunnudögum sé ekki alltaf farið í að skoða og taka ákvörðun um hvort opna skuli vegi sem eru á svokallaðri G-regl