Formaður Sjálfstæðisflokksins fagnar því sem hún segir heimkomu Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn. Hún segist hafa boðið fleiri þingmenn velkomna heim og að hún hafi rætt við fleiri þingmenn ríkisstjórnarinnar, sem hún segir standa veikt.Ingvar sat sinn fyrsta þingflokksfund með Sjálfstæðisflokknum í morgun eftir að hann tilkynnti úrsögn úr Viðreisn. Hann segist aldrei áður hafa verið viðloðinn Sjálfstæðisflokkinn en Viðreisn var stofnuð 2014 þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og fleiri Sjálfstæðismenn klufu sig úr flokknum vegna ágreinings um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir Ingvar hafa verið öflugan þingmann sem hafi unnið vel fyrir sitt kjördæmi.„Og oft hefur hægri hjarta hans segið með okkur Sj