Úkraínumenn gerðu í nótt árás á brúnna yfir Kerch-sund. Notast var við sjálfsprengidróna við árásina en útlit er fyrir að Úkraínumenn hafi í nótt gert einhverja umfangsmestu árás sína á Rússland hingað til. Ráðamenn í Rússlandi segja skemmdirnar á brúnni ekki vera miklar en myndefni gefur annað til kynna.