Ætla að koma upp brottvísunarstöð í Rúanda

Fimm Evrópuríki hyggjast reisa brottvísunarstöð í Rúanda fyrir hælisleitendur sem neitað hefur verið um alþjóðlega vernd. Búist er við því að fyrirætlanirnar verði kynntar á fundi í Vín í Austurríki síðdegis í dag.Í júní samþykkti Evrópuþingið ný lög sem heimila aðildarríkjum að reisa brottvísunarstöðvar utan ESB. Síðan þá hafa Danmörk, Þýskaland, Holland, Austurríki og Grikkland unnið að því að koma slíku úrræði á koppinn og sammæltust um það í september. Þarlend stjórnvöld hafa áður sagst vona að hægt verði að opna brottvísunarstöð á næsta ári.Í viðtali við danska ríkisútvarpið, DR, segir Morten Bødskov ráðherra útlendingamála að ekki verði hægt að senda erlenda brotamenn sem vísa eigi úr landi til Rúanda. „En við ætlum að byrja á þeim sem við getum sent nú þegar, hælisleitendur sem hafa
Ætla að koma upp brottvísunarstöð í Rúanda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar