Reykjavíkurborg stendur í dag fyrir fundi í ráðhúsinu þar sem saman koma ýmsir hagsmunaaðilar menntamála til að ræða hvernig koma megi skóla- og frístundastarfi í borginni í fremstu röð. Vísir mun sýna beint frá ráðhúsinu og ræða við aðila sem sitja munu fundinn.