Gréta María Grétarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri lágvöruverðsverslunarinnar Prís, hefur höfðað mál gegn Samkaupum hf., sem eiga og reka verslunarkeðjuna. Málið er skráð sem vinnulaunamál hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og verður tekið fyrir miðvikudaginn 18. nóvember næstkomandi. Ekki liggur fyrir hversu háar fjárkröfur Gréta María gerir á hendur fyrirtækinu eða hver nákvæmlega ágreiningur aðila er. Gréta María hætti óvænt sem framkvæmdastjóri Prís á...