Ingvar segir sig úr Viðreisn og gengur í Sjálfstæðisflokkinn

Þingflokkur Viðreisnar minnkaði í annað sinn á um það bil mánuði í dag þegar Ingvar Þóroddsson sagði sig úr flokknum og gekk í Sjálfstæðisflokkinn. Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar 15. október en sagðist þá styðja ríkisstjórnina áfram og verða flokksbundinn í Viðreisn.Ingvar hefur tilkynnt forseta Alþingis, og formanni og þingflokksformanni Viðreisnar um vistaskipti sín og að ríkisstjórnin geti ekki lengur reitt sig á hans stuðning. Þess í stað hefur hann ákveðið að starfa í stjórnarandstöðu.„Þessi ákvörðun er mér erfið og er tekin eftir langa íhugun. Mér þykir vænt um samstarfsfólk mitt í þingflokki Viðreisnar og ég hef eignast marga góða vini í flokknum. Ég er þakklátur fyrir samstarfið og traustið sem mér hefur verið sýnt. En ég ber líka ábyrgð gagnvart kjósendum mínum og mi
Ingvar segir sig úr Viðreisn og gengur í Sjálfstæðisflokkinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar