Fullorðnir Íslendingar verja meiri tíma í lestur og hlustun á bækur en í fyrra, samkvæmt nýrri lestrarkönnun sem RÚV greinir frá. Að meðaltali verja landsmenn 64 mínútum á dag í bækur, samanborið við 59 mínútur í fyrra. Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar íslenskra bókmennta, segir niðurstöðurnar ánægjulegar og telur mikinn meðbyr vera með lestri um þessar mundir. Hlutfall þeirra sem lásu...