Fimm menn voru í morgun sakfelldir fyrir fíkniefnasmygl. Þeir reyndu að koma tveimur kílóum af kókaíni og nær ellefu kílóum af amfetamíni fram hjá tollvörðum og lögreglu. Fíkniefnin földu mennirnir í húsbíl sem þrír mannanna komu á frá Hollandi.Kristinn Hólm Runólfsson og Kristinn Már Viðarsson voru dæmdir til sex ára fangelsisvistar. Kishan Mohabier-Panday hlaut fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm og þeir Sandeep Shiva Kamal Singh og Makesh Odeai hlutu fjögurra ára dóm hvor um sig. Allir sættu gæsluvarðhaldi frá 30. maí og dregst það frá fangelsisrefsingunni. Hollenska lögreglan óskaði upphaflega eftir aðstoð íslensku lögreglunnar þar sem hún hafði komist að því að til stæði að smygla miklu magni fíkniefna til landsins. Lögreglan hér á landi fylgdist með fundum tveggja Íslendinga og þriggj