Ráðamenn í Bandaríkjunum og þá sérstaklega stjórnendur varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna hunsuðu viðvaranir um íranska sjálfsprengidróna. Pete Hegseth varnarmálaráðherra vildi ekki heyra ábendingar um að Bandaríkjamenn ættu að leita aðstoðar Úkraínumanna við að þróa ódýrar og skilvirkar leiðir til að granda þessum drónum.