Heilbrigðisráðuneytið segir að opnun 100 einkarekinna hjúkrunarrýma í Urðarhvarfi í Kópavogi fyrr á árinu hafi skipt miklu máli við að létta álagi af starfsemi Landspítalans. Þetta kemur fram í svörum frá ráðuneytinu við spurningum fréttastofu um reynsluna af samningnum um hjúkrunarrýmin.Fyrirtækið Heilsuvernd rekur hjúkrunarrýmin og eigendur húsnæðisins eru meðal annarra eigendur Heilsuverndar. Rýmin eru skammtímaúrræði fyrir fólk sem dvalið hefur á Landspítala en þarf ekki lengur sjúkrahúsþjónustu.Í svarinu frá heilbrigðisráðuneytinu segir: „Enn er of snemmt að leggja heildstætt mat á hvernig samningurinn hefur reynst til lengri tíma. Til skemmri tíma liggur þó ljóst fyrir að markmiðin um að stytta bið fólks með færni- og heilsumat eftir hjúkrunarrýmum og létta álagi af Landspítala hafa