„Það eru allir sammála um það sem ég heyri í að það er mikill meðbyr með lestri og bókum þessa dagana,“ segir Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar íslenskra bókmennta.Ný lestrarkönnun sýnir að fullorðnir Íslendingar lesa meira í ár miðað við í fyrra. Fólk ver að jafnaði 64 mínútum á dag í að lesa eða hlusta á bækur. Í fyrra voru það 59 mínútur.„Lestur þjóðarinnar hefur tekið kipp frá því við gerðum síðustu könnun sem var fyrir ári. Það er auðvitað mjög ánægjulegt að sjá,“ segir Hrefna. FÆRRI SEM LESA ALDREI BÆKUR Hópurinn sem les aldrei bækur hefur dregist saman milli ára. Hlutfall þeirra sem segjast ekki hafa lesið neina bók síðasta mánuðinn minnkar úr 37% niður í 33% milli ára.Fleiri lesa hefðbundnar bækur og notkun bókasafna hefur ekki mælst meiri síðan árið 2019. Íslend