Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, er að eigin sögn á barmi taugaáfalls. Ástæðan er sleifarlag Fjölmiðlanefndar sem enn hefur ekki gefið út hve háan styrk stöðin fær eða hvenær. „Ég leita til allra stuðningsmanna Samstöðvarinnar um hjálp ...,“ skrifar hann í einlægri færslu á Facebook og segir að útgáfan sé í greiðsluvanda en ekki rekstrarvanda. Hann undirritar neyðarkallið sem ritstjóri...