Landsliðsgoðsögnin Aron Einar Gunnarsson tekur þátt í sínum síðasta landsleik þegar Ísland tekur á móti Lúxemborg í Þjóðadeildinni klukkan 17 á morgun. Aron Einar getur jafnað leikjamet Birkis Bjarnasonar, fyrrum liðsfélaga síns, spili hann í leiknum. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari sagði á fréttamannafundi að það væri þó alls ekki ljóst hvort Aron muni koma við sögu í leiknum. Ísland er að berjast um toppsæti riðilsins.