Ísak um West Ham orðróminn - „Eru þá líklegast að ljúga“

Ísak Bergmann Jóhannesson, miðjumaður íslenska landsliðsins, fer ekki leynt með þann draum sinn að spila í ensku úrvalsdeildinni í framtíðinni. Í sumar komu fréttir af því að hann væri á blaði hjá West Ham, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. „Já, ég sá þetta líka," segir Ísak, spurður út í orðróminn um West Ham. „Ég náttúrulega ólst upp á Englandi og draumurinn einn daginn er að spila á Englandi en ég er mjög ánægður hjá Köln. Við erum í smá brasi núna, erum rétt fyrir ofan fallsæti og ég náttúrulega bara fókusa á að hjálpa liðinu sem mest þar." „Það er draumur allra að spila í Premier League, þeir sem segja annað eru líklegast að ljúga. Ég er á flottum stað í Köln og spila í Bundesligunni í hverri viku. En maður stefnir alltaf hærra sem fótboltamaður." Ísak spilar fyrir
Ísak um West Ham orðróminn - „Eru þá líklegast að ljúga“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar