Ísland spilar sinn síðasta leik í C-deild Þjóðadeildarinnar á morgun þegar liðið fær Lúxemborg í heimsókn á Laugardalsvöll. Með jafntefli eða sigri tryggir Ísland sér efsta sæti riðilsins og fer því í B-deild.Fyrr í vikunni var greint frá því að Guðjón Þórðarson einn sigursælasti þjálfari Íslands og fyrrum landsliðsþjálfari væri fallinn frá. Í kjölfar þess hefur verið ákveðið að leikmenn komi til með að bera sorgarbönd og þá verður einnig mínútu þögn fyrir leik.Leikur Íslands og Lúxemborgar hefst 17:00 á morgun og er í beinni útsendingu á Sýn Sport.