Landsliðsmaðurinn Kristall Máni Ingason verður ekki með gegn Lúxemborg á morgun en hann fór meiddur af velli í fyrri hálfleik í 5-0 sigrinum gegn Búlgaríu. Kristall, sem leikur fyrir norska liðið Brann, var sárkvalinn. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var á fréttamannafundi í dag spurður út í stöðuna á honum. „Við höfum áhyggjur af Kristali náttúrulega, hann fer í myndatöku á morgun. Vonandi sleppur hann við verstu fréttirnar sem væru náttúrulega krossbandaslit. Við leyfum okkur ekki alveg að hugsa bara svo langt, við vonum það besta, segir Arnar. Auk Kristals meiddist Stefán Teitur Þórðarson einnig í Búlgaríu og þá verður Hörður Björgvin Magnússon í banni á morgun. Hjörtur Hermannsson, Brynjar Ingi Bjarnason og Sævar Atli Magnússon voru kallaðir inn í hópinn í þeirra stað. „Við fengum