Ísland mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlakeppni C-deildar Þjóðadeildarinnar klukkan 17 á morgun á Laugardalsvelli. Þar getur Ísland innsiglað sigur í riðlinum og komist beint upp í B-deildina að nýju. Ómar Smárason fjölmiðlafulltrúi KSÍ greindi frá því á fréttamannafundi í dag að búið sé að selja tæplega 3.000 miða.