Samkvæmt nýju reglunum er stefnt að því að um 40 prósent keppenda komist inn með því að ná tilskildum lágmörkum en 60 prósent í gegnum heimslista. Áður var miðað við að helmingur keppenda kæmist inn eftir hvorri leið.Þetta þýðir að staða á heimslista verður enn mikilvægari og gæti skipt sköpum fyrir íslenska keppendur. Árangur á alþjóðlegum mótum og stig sem þar fást munu því hafa mikið að segja í baráttunni um Ólympíusæti. ÍSLENSKIR KASTARAR NÁLÆGT LÁGMÖRKUNUM Nokkrir íslenskir frjálsíþróttamenn hafa þegar náð árangri sem er nálægt nýju lágmörkunum.Í sleggjukasti kvenna er lágmarkið 74 metrar en Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir kastaði 73,88 metra á árinu og vantar því aðeins 12 sentímetra upp á lágmarkið. Elísabet Rut Rúnarsdóttir hefur kastað 73,19 metra.Í sleggjukasti karla er lágmark