„Mjög leiðinlegt að missa afa“ - Sorgarbönd og þögn á morgun

Guðjón Þórðarson lést aðfaranótt föstudags, 71 árs gamall. Guðjón þjálfaði meðal annars íslenska landsliðið með frábærum árangri. Íslenska landsliðið mun leika með sorgarbönd gegn Lúxemborg á morgun og þá verður mínútuþögn fyrir leikinn. Guðjón var afi Ísaks Bergmanns Jóhannessonar, miðjumanns íslenska landsliðsins. Ísak segir að Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari hefði gefið sér faðmlag þegar hann heyrði fréttirnar en þá var landsliðið í Búlgaríu. „Við vissum þetta fyrir Búlgaríuleikinn. Arnar kom og knúsaði mig fyrir leikinn. Það er auðvitað mjög leiðinlegt að missa afa. Hann er náttúrulega goðsögn í íslenskum fótbolta. En maður þarf að vera fókusaður á verkefnið á morgun. Við þurfum að klára þetta vel. En eins og ég segi, bara leiðinlegt að missa afa og svona stóran prófíl í íslenskum
„Mjög leiðinlegt að missa afa“ - Sorgarbönd og þögn á morgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar