Ísland mætir Lúxemborg í síðasta leik sínum í riðlakeppni C-deildar Þjóðadeildarinnar klukkan 17 á morgun á Laugardalsvelli. Þar getur Ísland innsiglað sigur í riðlinum og komist beint upp í B-deildina að nýju. Aron Einar Gunnarsson tekur þátt í sínum síðasta landsleik og hann er í þessum skrifuðu orðum að æfa með liðinu í skítakulda á Laugardalsvelli, -6 gráðum. Ef Aron spilar þá jafnar hann landsleikjamet Birkis Bjarnasonar sem lék 113 landsleiki.