Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur írska félagið Shelbourne mikinn áhuga á því að fá Jón Gísla Eyland Gíslason í sínar raðir frá ÍA. Albert Brynjar Ingason sagði frá því í Dr. Football á föstudag að Jón Gísli væri á leið til félagsins, færi út í vikunni, en samkvæmt heimildum Fótbolta.net er það ekki frágengið, ÍA hefur ekki fengið kauptilboð í bakvörðinn sem er samningsbundinn Skagamönnum.