Norski Brasilíumaðurinn sigraði í Levi

Braathen, sem er 26 ára og fæddur í Noregi, vann einnig stórsvigið í Sölden í síðasta mánuði. Hann hafði mikla yfirburði í fyrri ferðinni í dag og leiddi með 65 hundraðshlutum úr sekúndu fyrir seinni ferðina.Frakkinn Clément Noël hafnaði í öðru sæti, 56 hundraðshlutum á eftir Braathen, en Norðmaðurinn Atle Lie McGrath varð sjöundi.Braathen keppir nú þriðja veturinn undir fána Brasilíu eftir að hafa sagt skilið við norska skíðasambandið.
Norski Brasilíumaðurinn sigraði í Levi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar