Nemendur sem útskrifast úr 10. bekk grunnskóla vorið 2027 munu fá lokaeinkunnir í tölum í stað bókstafa. Einkunnirnar verða gefnar á kvarðanum fjórir til tíu og námundaðar að næstu heilu tölu. Þetta kemur fram í tilkynningu menntamálaráðuneytisins um breytingar á aðalnámskrá grunnskóla sem hafa nú verið staðfestar. Markmið breytinganna er að gera námsmat skýrara, auka jafnræði milli skóla og veita...