Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu braut gegn lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði þegar umsækjanda um stöðu aðstoðaryfirlögregluþjóns var mismunað á grundvelli aldurs árið 2023. Þetta kemur fram í úrskurði kærunefndar jafnréttismála frá 29. október síðastliðnum. Halla Bergþóra Björnsdóttir, núverandi ríkislögreglustjóri, gegndi embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu þegar ákvörðunin var tekin. Umsækjandanum var ekki boðið í síðara atvinnuviðtal þrátt fyrir sjö til átta...