Nokkrir einstaklingar voru handteknir vegna líkamsárása, hótana og fíkniefnaaksturs á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla handtók einstakling vegna gruns um líkamsárás, hótanir og brot á lögreglusamþykkt og áfengislögum. Annar einstaklingur var einnig handtekinn vegna líkamsárása, hótana og brota á lögreglusamþykkt. Þá var einstaklingur handtekinn fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Fjölmörg...