Dóttir Thelmu Lindar Jónasardóttur slasaðist í gær í sleðabrekku við Arkarholt í Mosfellsbæ. Hún er marin og líklega brotin. Thelma segir mikla mildi að ekki hafi farið verr þegar dóttir hennar skall á brunnloki við enda brekkunnar eftir að hafa verið ýtt niður öfugt á sleðanum.