Páll Ágúst Þórarinsson veðurfræðingur hjá Vegagerðinni segir að vegir á Norður- og Norðvesturlandi séu að miklu leyti opnir eftir mokstur í morgun. Hann hvetur vegfarendur þó til varkárni því enn er unnið að mokstri og víða hálka og hálkublettir.Hins vegar eru vegir enn þá lokaðir um Austurland enda hafi veðrinu ekki slotað. Þegar úrkomunni slotar er búist við skafrenningi þannig að Páll hvetur fólk til að fylgjast vel með á umferdin.is.„Þetta gæti tekið aðeins lengri tíma þó að veðrið sé að ganga niður á næstu sex klukkutímum og fara sér ekki að voða.“ Páll Ágúst segir alvöru vetrarveður hafa geisað í gærkvöld og því hafi verið gripið til vegalokana víða.„Á Norðvesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi og þegar fór að líða inn á kvöldið og nóttina var lokað um Mývatns- og Möðrudalsöræfi í for