Á annað hundrað fjár grafið úr fönn suður af Blönduósi

Talsverðar annir voru í gærkvöld hjá lögreglu og björgunarsveitum vegna norðanhríðarveðursins sem gekk yfir landið norðan- og austanvert. Aðgerðir gengu vel og allur vandi leystist giftusamlega að sögn Jóns Þórs Víglundssonar upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Aðgerðum hafi lokið um klukkan eitt í nótt.„Ég held þetta hafi farið nokkuð vel miðað við veðurhaminn sem gekk yfir okkur. Það urðu náttúrulega talsverðar raskanir á samgöngum, sérstaklega kannski milli Holtavörðuheiðar og Öxnadalsheiðar þar sem einhverjir tugir lentu í vandræðum.“Snemma í morgun voru björgunarsveitir kallaðar út til liðsinnis við bónda nokkurn suður af Blönduósi sem óttaðist að allt að fjögur hundruð fjár hefði fennt í nótt. Þegar lögreglu bar að kom á daginn að ástandið var ekki jafn alvarlegt, segir Jón. > Það vakn
Á annað hundrað fjár grafið úr fönn suður af Blönduósi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar