Erfiðara að fá vinnu en áður

Erfiðara er að fá vinnu nú en var fyrir ári samkvæmt nýrri greiningu BHM. Atvinnuleysi hafi aukist tvö ár í röð, lausum störfum fækkað og fleiri fyrirtæki ætli að fækka starfsfólki fremur en fjölga því.BHM miðar við tölur Hagstofu Íslands, þar sem atvinnuleysi mældist 5,9% í september, samanborið við 4,8% í fyrra. Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar var atvinnuleysi 4% prósent í september en jókst um 0,3% í október – þegar það hafði einnig hækkað um tæplega hálft prósentustig frá því á sama tíma í fyrra.BHM segir hlutfall fólks sem vantar vinnu eða vill vinna meira hafa verið 14% í september og hafi ekki verið hærra síðan 2021. Þetta samsvari um 34.000 manns sem vantaði vinnu eða meiri vinnu. Laus störf hafi verið rúmlega 3.500 – og hafi fækkað um 35% síðan á sama tíma í fyrra.Yfir 1.700 haf
Erfiðara að fá vinnu en áður

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar