Búast má við talsverðum seinkunum á flugi Icelandair til Evrópu í dag og svo til Bandaríkjanna síðdegis í dag. Ásdís Ýr Pétursdóttir segir að vegna flugbanns í Bandaríkjunum í nótt hafi verið talsverðar seinkanir á brottförum frá Bandaríkjunum í gærkvöldi og það hafi keðjuverkandi áhrif.