Tho Huu Ho hefur verið dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að flytja tæplega tólf kíló af maríhúana til Íslands. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Maðurinn kom til landsins 13. september síðastliðinn með flugi frá Denver í Bandaríkjunum. Fíkniefnin, samtals 11.720 grömm, voru falin í farangurstösku hans og ætluð til söludreifingar. Maðurinn játaði brot sitt...