Ófært á Vestfjörðum og víða hálka, snjóþekja og þæfingur á vegum

Flestir vegir á Vestfjörðum eru ófærir en unnið verður að mokstri með morgninum að því er segir á vef Vegagerðarinnar. Einnig er þungfært víða á láglendi og ófært norður í Árneshrepp. Heiðavegir eru sagðir opnir en víða hálka, snjóþekja eða þæfingur. Holtavörðuheiði er opin og unnið að mokstri á Bröttubrekku, sem er lokuð. Snjóþekja er á götum höfuðborgarsvæðisins.Hálka og hálkublettir eru víðast hvar á vegum suðvestanlands og flughált á Suðurstrandarvegi, á Grafningsvegi og Þingvallavegi við Írafoss að Lyngdalsheiði. Snjóþekja eða hálka er á flestum vegum norðanlands þar sem unnið er að mokstri. Vegurinn milli Skaftafells og Djúpavogs er lokaður og flughált austan Kirkjubæjarklausturs, annars er hálka og hálkublettir á vegum suðaustanlands og á Suðurlandi. Öll flugumferð er á áætlun ennþá
Ófært á Vestfjörðum og víða hálka, snjóþekja og þæfingur á vegum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar